Allt fyrir hótel
og gististaði
Hjá okkur færðu allt fyrir hótelherbergi, veitingasali, stóreldhúsið og baksvæði
Fjölbreytt úrval fyrir rekstur hótela og gististaða
Þú færð allt fyrir daglegan rekstur hótela og gististaða hjá Bako Verslunartækni.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval; allt frá smávöru fyrir hótelherbergi yfir í húsgögn, borðbúnað í veitingasali og raftæki og annan búnað fyrir stóreldhúsið.
Við bjóðum upp á vandaða vöru og komum til móts við mismunandi þarfir viðskiptavina bæði með stöðluðum og sérhæfðum lausnum.
Hótelherbergi
Innréttingar
Raftæki
Vagnar
Húsgögn
Fatnaður
Veitingasalir
Baksvæði
Sérhönnun og sérlausnir
Til að skapa þægilegindi og góða upplifun viðskiptavina og starfsfólks
Reynslumiklir söluráðgjafar okkar aðstoða við hönnun og val á tækjum og búnaði fyrir hótel og gististaði. Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi með réttu tækjunum og uppsetningu sem gerir vinnuna þægilegri og fljótlegri.
Erlendir samstarfsaðilar koma gjarnan að þessum verkefnum með okkur eftir eðli og umfangi hverju sinni.
Hótelherbergi
Allt frá innréttingum niður í smæstu smáatriði fyrir hótelbergi
Úrval vandaðra innréttinga, húsgagna og vara fyrir hótelherbergi í öllum stærðum gerðum. Bjóðum öryggishólf, bakka, töskustanda, ruslafötur og fleira.
Innréttingar
Herbergin barirnir salirnir og móttaka
Við höfum komið að fjöldan allan af samstarfsverkefnum við hótel og gististaði frá grunni.
Sérfræðingar okkar koma með sérlausnir og hönnun fyrir t.a.m. hótelherbergi, bari, veitingasali innan hótela allt eftir þörfum viðskiptavina hverju sinni.
Raftæki
Stór og smá
Hjá okkar fást öll raftæki fyrir starfsemi hótela og gististaða.
Allt frá hárblásurum í yfir þvottavélar og þurrkara fyrir þvottahúsið.
Vagnar
Svo allt rúlli hratt og örugglega
Fjölbreytt úrval farangursvagna og vagna fyrir baksvæði; lager- og eldhúsvagnar.
Rollsinn í stóreldhúsgeiranum
,,Rational þykir Rollsinn í stóreldhúsgeiranum á heimsvísu þar sem ofnarnir eru með mestu markaðshlutdeild í heimi þegar kemur að ofnum í fageldhús.
Ofnarnir þykja afar þægilegir og einfaldir í notkun þar sem að stjórnborðið er á íslensku.
Ofnarnir eru í hæsta gæðaflokki og bestu vinir matreiðslumanna á veitingahúsum og í stóreldhúsum. Bako Verslunartækni erstoltur umboðs- og söluaðili Rational á Íslandi, nánari upplýsingar hjá söluráðgjöfum í síma 595-6200 eða á [email protected]”
Alvöru hnífar sem fagfólk elskar að vinna með
Það er unun að vinna með góðum hnífum og það þekkjum við.
Þess vegna bjóðum við vandað úrval af hnífum fyrir fagfólk.
Húsgögn
Fyrir herbergin, salina og setustofur
Sérfræðingar okkar þekkja hvernig er að velja réttu húsgögnin á hótel. Hjá okkur fást stólar, borð og margt fleira.
Fatnaður
Allur fatnaður fyrir kokka og starfsfólk í eldhúsum
Hjá okkur fæst úrval af klæðnaði fyrir matreiðslumeistara og starfsfólk í framlínu.
Veitingasalir
Innréttingar húsgögn áhöld og framreiðsla
Breitt úrval af innréttingum, húsgögnum, afgreiðslulínum, áhöldum, borðbúnaði, tækjum og öllu til framreiðslu í veitingasölum hjá Bako Verslunartækni.
Baksvæði
Gott skipulag og flæði
Við höfum reynslu í að búa til skapalón með hámarks nýtingu baksvæða í huga
Áhugaverð tæki og lausnir fyrir stóreldhúsið
Við leitum stöðugt leiða til að auðvelda viðskiptavinum okkar reksturinn með áhrifaríkum lausnum og búnaði.
Hér eru nokkrar leiðir til að þróa reksturinn.
Nú þarf ekki að grenja yfir lauknum
Sparaðu tíma og mannskap með því að velja grænmetisskurðarvél sem hentar einstaklega vel í að skera lauk. Óþarfi að láta mannskapinn standa í að skera lauk mikið lengur.
Öðruvísi og spennandi framsetning
Farðu nýjar leiðir. Nýttu möguleikana á spennandi framsetningu og sterkari hughrifum.
Sígigildur glæsileiki og notagildi
Kaffi er ekki bara kaffi og kaffibolli er ekki bara kaffibolli. WMF býður glæsilega og sígilda bolla sem styðja vel við gott kaffi.